Engin „töfralausn“ við árásum Tyrkja

Til greina kemur að ríki ESB sammælist um að banna …
Til greina kemur að ríki ESB sammælist um að banna allan útflutning á hernaðargögnum til Tyrklands en Josep Borell, utanríkisráðherra Spánar, segir að erfitt muni reynast að fá einróma samþykki aðildarríkjanna 28. AFP

Geta aðildarríkja Evrópusambandsins til að grípa til sameiginlegra aðgerða gegn árásum Tyrkja á Kúrda við landamæri Sýrlands er takmörkuð. Þetta kom fram á sameiginlegum fundi utanríkisráðherra aðildarríkja ESB í Lúxemborg í morgun. 

Kúrdar hafa komist að samkomulagi við sýrlenska ráðamenn um að senda sýr­lensk­ar her­sveit­ir að landa­mær­um Sýr­lands og Tyrk­lands til þess að bregðast við inn­rás tyrk­neska hers­ins. Kúr­d­ar hafa sagt sam­komu­lag sitt við Sýr­lands­stjórn nauðsyn­legt til þess að stöðva sókn Tyrkja. 

Til greina kemur að ríki ESB sammælist um að banna allan útflutning á hernaðargögnum til Tyrklands, líkt og Þýskaland, Holland, Noregur og Finnland hafa gert, en Josep Borell, utanríkisráðherra Spánar, segir að erfitt muni reynast að fá einróma samþykki aðildarríkjanna 28. 

„Við búum ekki yfir töfralausn en við getum beitt þrýstingi til að stöðva þessar aðgerðir,“ sagði Borell fyrir fund ráðherranna. 

Evrópusambandið sendi frá sér yfirlýsingu í síðustu viku þar sem innrás Tyrkja er fordæmd og hún sögð ýta undir mann­skæðar of­sókn­ir í garð Kúrda og vera lík­leg til að styrkja hryðju­verka­sam­tök­in Ríki íslams við botn Miðjarðar­hafs­ins. 

Verður 5. grein NATO-sáttmálans virkjuð?

Innrás Tyrkja hefur valdið stjórnarmönnum Atlants­hafs­banda­lags­ins ýmsum heilabrotum. Jean Asselborn, utanríkisráðherra Lúxemborgar, segir ástandið lygilegt og veltir hann fyrir sér hvert framhaldið verður ef yfirvöld í Sýrlandi grípa til vopna. „Verður fimmta greinin virkjuð?“ spurði hann og vísaði þar í grein stofnsáttmála bandalagsins sem tilgreinir að sérhver árás á aðildarríki NATO jafngildi árás á öll ríki þess.

Jens Stolten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, viðraði áhyggj­ur sín­ar af hernaðaraðgerðum Tyrkja gegn Kúr­d­um í Sýr­landi á fundi sín­um með Mevlut Cavu­soglu, ut­an­rík­is­ráðherra Tyrk­lands, í Ist­an­búl á föstudag. Hann hvatti Tyrki til að gæta hófsemi í aðgerðum sínum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert