Flugslys í Íran

mbl.is/Kristinn

Flugvél með meira en fimmtíu farþega um borð fórst í Íran fyrir skömmu. Um var að ræða íranska farþegaþotu sem brotlenti í Zagros-fjalllendinu, samkvæmt því sem yfirmaður almannavarna landsins greindi frá í dag.

Pir Hossein Koolivand segir í samtali við Fars-fréttastofuna að vélin hafi brotlent í Semirom og björgunarsveitir séu á leiðinni á slysstað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert