Segja ákvörðun Trumps skapa glundroða

Utanríkisráðherrar 22 ríkja Arababandalagsins komu saman á fundi í Kaíró …
Utanríkisráðherrar 22 ríkja Arababandalagsins komu saman á fundi í Kaíró í gær. AFP

Utanríkisráðherrar 22 Arabaríkja hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þess er krafist að Bandaríkin afturkalli viðurkenningu sína á Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels. Í yfirlýsingunni er alþjóðasamfélagið einnig hvatt til að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki.

Í frétt BBC kemur fram að yfirvöld í Arabaríkjunum telji að ákvörðun Trumps auki hættu á ofbeldi og glundroða í Mið-Austurlöndum. Þá sé ekki lengur hægt að treysta á Bandaríkin sem málamiðlara í deilunni á svæðinu.

Frá því að Trump lýsti yfir ákvörðun sinni á miðvikudag hafa átök bortist út á Gaza og Vesturbakkanum. Eld­flaug­um hefur verið skotið og loft­árás­ir voru gerðar á Gaza í gær. Fjór­ir Palestínu­menn hafa fallið í átökunum og tug­ir hafa særst.

Frétt mbl.is: Fjórir Palestínumenn féllu

Arababandalagið fundaði í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, í gær. Á fundinum var meðal annars samþykkt að leita til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í þeim tilgangi að fordæma ákvörðunina og tilkynna hana sem brot á alþjóðalögum.

Meðal ríkja sem skrifa undir yfirlýsinguna eru ríki sem hafa verið hliðholl Bandaríkjunum, líkt og Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádi-Arabía og Jórdanía.

Einn af fáum þjóðhöfðingjum sem hafa lýst yfir ánægju sinni með ákvörðun Trumps er for­seti Tékk­lands, Mi­los Zem­an. Hann sakaði Evr­ópu­sam­bandið í gær um heig­uls­hátt vegna viðbragða sam­bands­ins við ákvörðun Trumps.

Frétt mbl.is: Sakar ESB um heigulshátt

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka