Giftu sig á Suðurskautslandinu

Tveir leiðsögumenn giftu sig á Suðurskautslandinu og eru þeir fyrsta parið til að ganga í það heilaga á svæði sem þar tilheyrir Bretum.

 Tom Sylvester og Julie Baum játuðu hvort öðru ást sína í Tothera-rannsóknarstöðinni á Adelaide-eyju sem er á vestanverðu Suðurskautslandinu. Um tuttugu gestir voru viðstaddir athöfnina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert