Hollande og Gayet enn saman?

Julie Gayet.
Julie Gayet. AFP

Fyrir rúmlega ári kom í ljós að samband François Hollande, forseta Frakklands, og sambýliskonu hans Valérie Trierweiler væri á enda. Leikkonan Julie Gayet hafði fangað hjarta hans og hélt hann framhjá Trierweiler með henni.

En eru forsetinn og Gayet enn saman? Blaðið Closer virðist að minnsta kosti telja það og birtir í dag mynd þar sem sjá má hina 42 ára Gayet á ferðinni í fylgd eins af lífvörðum forsetans. Þá segir einnig að þau Hollande hittist nokkrum sinnum í viku og hún gangi reglulega með hund hans, Philae.

Hollande hefur neitað að tjá sig um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert