Viskístórslys í Skotlandi

Viskíglös
Viskíglös Þorvaldur Örn Kristmundsson

Þúsundum lítra af viskíi var fyrir slysni hellt niður í átöppunarverksmiðju Chivas Brothers í Dumbarton, Skotlandi. Fregnir herma að óhappið hafi orðið vegna misskilnings á næturvakt í verksmiðjunni við þrif á bruggtækjunum.

Í stað þess að hella burt affallsvatni helltu starfsmenn verksmiðjunnar niður þúsundum lítra af viskíi. Lyktin af vökvanum sem hellt var niður var svo sterk að holræsastarfsmenn tilkynntu hana til yfirvalda, segir í frétt á vef BBC.

Chivas Brothers framleiðir meðal annars Chivas Regal og Ballantine's, næst söluhæstu viskítegund í heimi. Að sögn fyrirtækisins er slysið í rannsókn. Slysið hefur verið tilkynnt yfirvöldum á svæðinu, en vínandi hefur ekki fundist í nærliggjandi ám eða vatnsbólum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert