„Ég kveð húsið sem ég elska“

Sara Marti segist vera ótrúlega stolt af því sem hún …
Sara Marti segist vera ótrúlega stolt af því sem hún hafi áorkað í Tjarnarbíó síðastliðin ár. Ljósmynd/Aðsend

Sara Marti Guðmundsdóttir hefur sagt skilið við Tjarnarbíó og ætlar að snúa sér að öðrum verkefnum. Sara Marti, sem hefur gegnt stöðu leikhússtjóra frá árinu 2022, segir að tíminn hafi verið þýðingarmikill og krefjandi. Hún greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni.

,,Blússandi sigling á sökkvandi skipi”

„Takk fyrir mig!

Ég kveð húsið sem ég elska.

Ég hef alltaf brunnið fyrir sjálfstæðu sviðslistasenunni, orkunni og sköpunarþránni í listafólkinu og hetjudáðina sem þetta fólk vinnur stundum til að koma verkum sínum á svið.

Það hefur kannski ekki dulist neinum sem fylgst hefur með Tjarnarbíó að þetta er erfiður rekstur. Þetta er í rauninni ómögulegt rekstarform eins og öll leikhús upplifa (þess vegna þurfa öll leikhús á stuðningi að halda).

„Blússandi sigling á sökkvandi skipi” hef ég stundum kallað Tjarnarbíó. Því alveg sama hversu vel okkur hefur gengið, metsöluár, 5-7 sýningar á viku, sneisafullt af áhorfendum og endalaust jákvæð umfjöllun. Það dugar ekki til og það verður að koma meira til frá borg og ríki ef hér á að vera til sjálfstæð sviðslistasena.

Ég er svo ótrúlega stolt af því sem ég hef áorkað í Tjarnarbíó síðustu árin. Þegar ég tók við, fékk ég fjölbreyttan hóp fólks úr senunni til að móta stefnu fyrir leikhúsið og hefur allt mitt starf miðað út frá þeirri vinnu. Við fórum í stóra herferð sem náði athygli borgar og ríkis um aðstöðumun leikhúsanna undir yfirskriftinni #stækkumtjarnarbio. Ég endurhannaði með Auði Ösp Guðmundsdóttur framhúsið til að skapa betra rými fyrir gesti, þægilegri bar og við settum upp nýtt lítið svið sem hefur mikið verið notað enda brýn þörf á fleiri sviðum á höfuðborgarsvæðinu. Ný heimasíða leit dagsins ljós og við höfum spýtt verulega í markaðsmálin og haldið námskeið fyrir sjálfstætt sviðslistafólk í markaðssetningu. Við höfum rifið upp sölu og áhorfendatölur og við erum með jafn margar sýningar á okkar eina sviðið og hin leikhúsin tvö á sínum þrem sviðum. Þetta hafðist vegna þess góða fólks sem starfar í Tjarnarbíó.

Takk takk takk elsku samstarfsfólkið mitt, takk kæra sviðslistafólk fyrir samstarfið, takk þið sem komuð með einum og öðrum hætti að framkvæmdunum í framhúsinu, takk kæru Skúli, María Rut og Eiríkur hjá borginni, takk kæru gestir fyrir komuna og takk fyrir listina.

Áfram sjálfstæðar sviðslistir!“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir