Nick Cave snýr aftur til Íslands 2. júlí og mun koma fram í Eldborgarsal Hörpu. Með honum á bassagítar verður Colin Greenwood úr Radiohead.
Þeir munu flytja valin lög, hrá og óskreytt, og munu þannig afhjúpa grundvallareðli þeirra fyrir áhorfendum, að því er segir í tilkynningu.
Sex verðsvæði eru í boði og kosta miðarnir frá 6.990 krónum. Almenn sala hefst á föstudag kl. 10 og eingöngu verða um 1.500 miðar í boði.