Sextugur og sexí

George Clooney er 60 ára í dag.
George Clooney er 60 ára í dag. AFP

Hollywoodleikarinn George Clooney fagnar sextíu ára afmæli sínu í dag, 6. maí. Clooney virðist eldast eins og gott rauðvín og er enn jafn kynþokkafullur og hann var árin 2006 og 1997 þegar hann var kosinn sá kynþokkafyllsti í heimi. 

Clooney hefur ekkert gefið út um hvernig hann ætlar að eyða afmælisdeginum en dagurinn mun eflaust litast af heimsfaraldrinum. 

Í viðtali við Entertainment Tonight í síðustu viku sagðist Clooney ekki vera spenntur fyrir afmælisdeginum. „Ég er ekkert klikkað spenntur yfir því að verða sextugur, en það er betra en að vera dauður. Svo ég tek því. Ég hef tvo valmöguleika. Því eldri sem maður verður því minni verða væntingarnar.“

Skárra að verða 60 ára en að vera dauður.
Skárra að verða 60 ára en að vera dauður. TIZIANA FABI
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson