Leikarhjónin Jennifer Aniston og Justin Theroux tilkynntu að þau væru hætt saman á fimmtudaginn. Sumir aðdáendur hennar gera sér vonir um að hún byrji aftur með Brad Pitt, fyrrverandi eiginmanni sínum, en Pitt er þó ekki eini maðurinn í símaskrá Aniston.
Justin Theroux
Jennifer Aniston og Justin Theroux byrjuðu saman árið 2011. Þau trúlofuðu sig árið 2012 og giftu sig þremur árum seinna. Þau hættu saman fyrir áramót og tilkynntu um sambandsslitin í vikunni.
Gerard Butler
Aniston og Butler eru sögð hafa átt í stuttu sambandi við tökur á myndinni The Bounty Hunter.
John Mayer
Aniston átti í sambandi við tónlistarmanninn John Mayer á árunum 2008 til 2009.
Vince Vaughn
Aniston byrjaði með leikaranum Vince Vaughn stuttu eftir skilnaðinn við Pitt. Þau hættu saman eftir um tveggja ára samband.
Tate Donovan
Aniston og leikarinn Donovan byrjuðu að hittast árið 1995 og trúlofuðu sig árið 1997. Trúlofunin entist þó ekki lengi og ári seinna voru þau hætt saman.