Hnakkrifust við upptökur á Notebook

Ryan Gosling fór með karlkyns aðalhlutverk myndarinnar The Notebook.
Ryan Gosling fór með karlkyns aðalhlutverk myndarinnar The Notebook. Mynd/Getty Images

Hjartaknúsarinn Ryan Gosling og leikkonan Rachel McAdams hnakkrifust við upptökur á kvikmyndinni The Notebook. Þessu greinir leikstjóri myndarinnar Nick Cassavetes frá í viðtali við sjónvarpsstöðina VH1. 

The Notebook er vel þekkt ástarmynd sem fjallar um langvarandi ást pars sem lendir í miklum erfiðleikum á lífsleiðinni. 

„Kannski ætti ég ekki að greina frá þessu en einn daginn rifust þau heiftarlega. Ryan kom til mín þegar hann var að leika í atriði á móti Rachel og spyr hvort ég geti reddað annarri konu til þess að lesa línurnar hennar á móti mér án þess að hún sjáist á myndavélinni. Þá fórum við öll inn í lokað herbergi og þau rifust og öskruðu hvort á annað. Sem reykingarmaður á þessum tíma fékk ég mér bara sígarettu og svo löbbuðum við öll út og lukum við upptökurnar á atriðinu,“ sagði Cassavetes. 

Hann segir að eftir þetta rifrildi hafi allt gengið mun betur. Þau hafi áfram rifist inn á milli, en Gosling hafi borið mikla virðingu fyrir því að McAdams hafi svarað fyrir sig fullum hálsi. 

Sjá frétt justjared.com

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér finnst kannski að einhver í vinnunni sé að segja þér ósatt og líklega er það rétt mat hjá þér. Mundu að þú ert sjálfur gæddur þeim hæfileikum sem duga þér til árangurs.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér finnst kannski að einhver í vinnunni sé að segja þér ósatt og líklega er það rétt mat hjá þér. Mundu að þú ert sjálfur gæddur þeim hæfileikum sem duga þér til árangurs.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir