Aníta Rós og Hermann eiga von á barni

Aníta Rós Þorsteinsdóttir á von á sínu fyrsta barni.
Aníta Rós Þorsteinsdóttir á von á sínu fyrsta barni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Söngkonan og dansarinn Aníta Rós Þorsteinsdóttir og kærasti hennar Hermann Árnason, mannauðsráðgjafi hjá Icelandair, eiga von á sínu fyrsta barni saman. 

Parið tilkynnti gleðifregnirnar í sameiginlegri færslu á Instagram þar sem þau héldu á sónarmynd.

Aníta Rós tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár með laginu Stingum af og komst í úrslit þar sem Hera Björk Þórhallsdóttir bar sigur úr býtum. Þá hefur Aníta Rós tekið þátt í hinum ýmsu verkefnum í listasenunni sem leikari, dansari, söngvari og danshöfundur. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

View this post on Instagram

A post shared by A N I T A 🦋 (@anitarosth)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert