Vignir og Arna Ýr eignuðust dóttur heima

Vignir Þór Bollason og Arna Ýr Jónsdóttir giftu sig í …
Vignir Þór Bollason og Arna Ýr Jónsdóttir giftu sig í fyrrasumar og eru nú búin að eignast þriðja barnið. Skjáskot/Instagram

Hjónin Arna Ýr Jónsdóttir, fegurðardrottning og hjúkrunarfræðinemi, og Vignir Þór Bollason kírópraktor, eignuðust sitt þriðja barn, stúlku, á miðvikudag. Þau tilkynntu um komu barnsins á Instagram. 

Fæðingin var heimafæðing, en Arna Ýr eignaðist dóttur sína í uppblásinni sundlaug heima í stofu.

„Sólarhringur með stúlkunni okkar sem fæddist heima í faðmi fjölskyldunnar í gærkveldi kl 21. Fæðingin var draumi líkast en 14 marka daman mætti svo friðsæl í heiminn þrátt fyrir mjög hraðan aðdraganda. Við erum orðlaus, hamingjusöm og þakklát.“

Þetta er þriðja barn hjónanna sem giftu sig í fyrrasumar. Fyrir eiga þau eina dóttur sem kom í heiminn 2019 og son sem kom í heiminn 2021 en eldri börnin tvö eiga sama afmælisdag.

Fjölskylduvefur mbl.is óskar hjónunum til hamingju með barnalánið!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert