Stúlknaveldi á heimili Gadot og Versano

Gal Gadot deildi fallegri mynd með fylgjendum sínum á Instagram.
Gal Gadot deildi fallegri mynd með fylgjendum sínum á Instagram. Samsett mynd

Ísraelska leikkonan Gal Gadot er orðin fjögurra barna móðir. Gadot birti mynd af sér og nýfæddri dóttur sinni á Instagram í gærdag. Stúlkan hefur hlotið nafnið Ori, en það þýðir ljósið mitt.

„Ljúfa stúlkan mín, velkomin,“ skrifaði Gadot við færsluna. „Meðgangan var ekki auðveld en við komumst í gegnum þetta saman.“

Leikkonan, 38 ára, lét lítið fyrir sér fara yfir meðgöngutímabilið og hélt óléttunni leyndri. 

Gadot og eiginmaður hennar Yaron Varsano gengu í það heilaga árið 2009. Fyrir eiga þau dæturnar Ölmu, Mayu og Daniellu.

View this post on Instagram

A post shared by Gal Gadot (@gal_gadot)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert