Beraði bumbuna víðs vegar um borgina

Saga Garðarsdóttir hefur bráðskemmtilegan húmor.
Saga Garðarsdóttir hefur bráðskemmtilegan húmor. Samsett mynd

Leikkonan Saga Garðarsdóttir og tónlistarmaðurinn Snorri Helgason eignuðust sitt annað barn, dreng, snemma á árinu. Hjónin hafa ekki birt myndir af drengnum á samfélagsmiðlum en Saga var dugleg að deila myndum af vaxandi óléttukúlu sinni í gegnum meðgöngutímabilið.

Leikkonan rifjaði upp „gamlar“ minningar frá síðustu vikum seinni meðgöngu sinnar og póstaði skemmtilegri myndaseríu á Instagram.

„Fyrir tveimur mánuðum eignaðist ég svo fallegt barn að ég hef ekki litið af því. Áður en það gerðist fórum við Magnús Leifsson í gönguferð á Þorláksmessu,“ skrifaði Saga við færsluna.

Saga og Snorri hafa verið sam­an frá ár­inu 2014, en þau gengu í það heil­aga á Suður­eyri í ág­úst 2018. Ilm­ur Kristjáns­dótt­ir leik­kona gaf þau sam­an og var veisl­an hin glæsi­leg­asta. Fyr­ir eiga þau dótt­ur­ina Eddu Krist­ínu sem kom í heim­inn árið 2018. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert