Birgitta Líf birti dýrmæta feðgamynd

Foreldralífið er ljúft.
Foreldralífið er ljúft. Ljósmynd/Instagram

Birgitta Líf Björnsdóttir, samfélagsmiðlastjarna og markaðsstjóri World Class, fæddi son hinn 8. febrúar síðastliðinn. Drengurinn er fyrsta barn Birgittu Lífar og sambýlismanns hennar, Enoks Jónssonar. Parið greindi frá komu barnsins á sunnudag með fallegri mynd á Instagram. 

Birgitta Líf og Enok eru nú komin heim af fæðingardeildinni og byrjuð að aðlagast nýjum aðstæðum og fjölskyldulífinu.

Nýbakaða móðirin birti dýrmæta mynd af feðgunum á Instagram sem sýnir Enok með son þeirra í svokölluðu „skin-to skin“, en það er mjög mikilvægt fyrir ungabörn að upplifa slíkt fyrstu daga sína. 

Það er ekkert betra.
Það er ekkert betra. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert