Tanja Ýr kynnir nýjan fjölskyldumeðlim

Fjölskyldan stækkar!
Fjölskyldan stækkar! Skjáskot/Instagram

Athafnakonan og áhrifavaldurinn Tanja Ýr Ástþórsdóttir kynnti nýjan fjölskyldumeðlim fyrir fylgjendum sínum á Instagram um helgina, hundinn Polly. 

„Hér er Polly. Á leiðinni á framtíðarheimilið sitt,“ skrifaði Tanja Ýr við myndaröð af þeim Polly á leiðinni heim, en þær virðast alsælar hvor með aðra. 

View this post on Instagram

A post shared by T A N J A Ý R (@tanjayra)

Festu kaup á húsi í Manchester

Tanja Ýr er búsett í Manchester-borg á Bretlandseyjum ásamt kærasta sínum Ryan. Hún flutti þangað árið 2022 til að koma fyrirtæki sínu, Glamista hair, betur fyrir á alþjóðlegum markaði en fyrirtækið selur hárlengingar. 

Í nóvember 2023 festu Tanja Ýr og Ryan svo kaup á húsi í Manchester sem þau vinna nú hörðum höndum að því að endurbæta og gera að sínu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert