Gylfi og Karitas kynna nýjan fjölskyldumeðlim

Fjölskylda Gylfa Einarssonar og Karitasar Maríu Lárusdóttur hefur stækkað!
Fjölskylda Gylfa Einarssonar og Karitasar Maríu Lárusdóttur hefur stækkað! Skjáskot/Instagram

Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Gylfi Einarsson og eiginkona hans, Karitas María Lárusdóttir einkaþjálfari, tilkynntu í gær að nýr meðlimur hafi bæst við fjölskylduna. 

Gylfi og Karitas eiga tvö börn saman og gengu í það heilaga við glæsilega athöfn á La Finca Resort hótelinu á Alicante sumarið 2023.

Ofurkrúttleg viðbót við fjölskylduna

Nú hefur fjölskylda þeirra stækkað og var nýjasti fjölskyldumeðlimurinn, hvolpurinn Leo, kynntur til leiks á Instagram í gær. 

„Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn – Leo. Ég mun reyna hemja mig á samfélagsmiðlum..,“ skrifuðu þau í sameiginlegri færslu og birtu fallega myndaröð af fjölskyldunni sem er greinilega í skýjunum með Leo. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert