Líst ekki illa á samning sjómanna

Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM, segir félagið nú skoða samninginn …
Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM, segir félagið nú skoða samninginn sem sjómenn gerðu við SFS. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Forystumenn vélstjóra meta þessa dagana hvort nýgerður kjarasamningur Sjómannasambands Íslands (SÍ) og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) gæti hentað þeim, að því er fram kemur í Morgunblaðinu. VM og Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur eru enn með lausa samninga en vélstjórar felldu í atkvæðagreiðslu síðastliðið vor kjarasamning sem þá var gerður.

„Við erum svona að skoða þennan samning og reyna að aðlaga hann aðeins að okkur,“ sagði Guðmundur Helgi Þórarinsson formaður VM í gær, spurður álits á nýju sjómannasamningunum „Ég tel að menn hafi náð að sníða nokkra galla af þessum fellda samningi og svo hafa menn líka fengið þarna inn einhver atriði sem eru til bóta.“

Kveðst Guðmundur vona að takast muni að aðlaga samninginn að félagsmönnum hans svo hægt verði að bera hann undir atkvæði í félaginu. Meginkrafa vélstjóra er að fá tímakaupið leiðrétt sem snýr að störfum vélstjóra í landi en laun þeirra hafa staðið í stað frá 2019.

„Ég á von á að funda með samninganefndinni á morgun eða hinn og þá tökum við ákvörðun um hvort við kjósum um sama samning eða ekki,“ segir Guðmundur.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 414,12 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,73 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 392,47 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,32 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,47 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Fíi ÞH 11 Grásleppunet
Grásleppa 1.305 kg
Samtals 1.305 kg
17.5.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Þorskur 113 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 139 kg
17.5.24 Ásdís ÞH 136 Grásleppunet
Grásleppa 119 kg
Þorskur 90 kg
Ufsi 48 kg
Samtals 257 kg
17.5.24 Elín ÞH 82 Grásleppunet
Grásleppa 2.161 kg
Þorskur 150 kg
Skarkoli 28 kg
Samtals 2.339 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 414,12 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,73 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 392,47 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,32 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,47 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Fíi ÞH 11 Grásleppunet
Grásleppa 1.305 kg
Samtals 1.305 kg
17.5.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Þorskur 113 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 139 kg
17.5.24 Ásdís ÞH 136 Grásleppunet
Grásleppa 119 kg
Þorskur 90 kg
Ufsi 48 kg
Samtals 257 kg
17.5.24 Elín ÞH 82 Grásleppunet
Grásleppa 2.161 kg
Þorskur 150 kg
Skarkoli 28 kg
Samtals 2.339 kg

Skoða allar landanir »