Svör Páls Gunnars sögð aumkunarverð

„Samningurinn talar sínu máli og það er greinilegt að Páll …
„Samningurinn talar sínu máli og það er greinilegt að Páll Gunnar er að segja ósatt um efni hans,“ segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims. Ljósmynd/Aðsend

„Mér finnst svör Páls Gunnars Pálssonar við athugasemdum okkar aumkunarverð,“ segir Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims hf. í samtali við Morgunblaðið, en hann var spurður álits á ummælum Páls Gunnars um að Samkeppniseftirlitið hefði haft frumkvæði að því að ráðast í athugun á stjórnunar- og eignatengslum í sjávarútvegi, en ekki matvælaráðuneytið.

„Ef samningur Samkeppniseftirlitsins og matvælaráðuneytisins er skoðaður þá stendur þar skýrum stöfum í fjórðu grein hans að Samkeppniseftirlitið greini matvælaráðuneytinu reglulega frá stöðu verkefnisins á meðan á samningstíma stendur. Í 5. grein segir síðan að ráðuneytið hafi rétt á að stöðva millifærslur eða fresta þeim telji það framkvæmd verkefnisins ekki í samræmi við samninginn. Ráðuneytið hefur því rétt á að vita allt um hvað er verið að fjalla um í athuguninni,“ sagði Guðmundur.

„Matvælaráðuneytið á sem sagt að fá reglulega upplýsingar um stöðu mála og ef það er ekki sátt við vinnubrögðin, þá borgar það ekki neitt. Samningurinn talar sínu máli og það er greinilegt að Páll Gunnar er að segja ósatt um efni hans,“ segir Guðmundur.

Matvælaráðuneyti sigi eftirlitsstofnunum á fólk

„Við teljum að framkvæmdavaldið geti ekki samið við eftirlitsstofnanir um að rannsaka borgarana í landinu. Það er kjarni málsins að mínu mati. Það á ekki að vera hægt að matvælaráðuneytið sigi eftirlitsstofnun á fólk í landinu eins og hér er gert,“ segir hann.

Ef úrskurður áfrýjunarnefndarinnar verður Brimi í óhag, hvað þá?

„Þá þurfum við að meta það hvort við skilum inn umbeðnum gögnum eða kærum málið til íslenskra dómstóla. Stjórn Brims mun fara yfir málið,“ segir Guðmundur Kristjánsson.

Umfjöllunina má sjá í heild sinni í Morgunblaðinu í dag, föstudag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »