Brim kærir dagsektir innan tveggja vikna

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf. mbl.is/Kristinn Magnússon

Gert er ráð fyrir því að sjávarútvegsfyrirtækið Brim hf. muni skila inn kæru til Áfrýjunarnefndar samkeppnismála innan tveggja vikna vegna úrskurðar Samkeppniseftirlitsins um að gera félaginu að greiða sektir að fjárhæð 3,5 milljónum á dag. Ástæð dagsektanna er sú að félagið hefur ekki skilað inn öllum þeim gögnum sem eftirlitið krafðist vegna athugunar stofnunarinnar á stjórnunar- og eignatengslum í sjávarútvegi.

Með kærunni frestast réttaráhrif sektargerðarinnar að sögn Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra Brims, sem segir ennfrmur að félagið muni jafnframt kvarta á  nýjan leik til Umboðsmanns Alþingis.

„Umboðsmaður var áður búinn að segja okkur að hann gæti ekki tekið á þessu máli af því að stjórn Samkeppniseftirlitsins var ekki áður búin að samþykkja vegferð eftirlitsins í málinu. Síðan barst svar frá stjórninni sem forstjórinn skrifar reyndar sjálfur -  sem er mjög fróðleg málsmeðferð. Þannig að nú fer málið aftur til Umboðsmanns,“ sagði Guðmundur.

Falli úrskurður áfrýjunarnefndarinnar Brimi í óhag segir Guðmundur að skoðað verði hvort gögnunum verði skilað eða hvort málinu verði vísað til dómstóla. Stjórn Brims taki ákvörðun um það. „Það var einhugur í stjórn Brims um að skila ekki inn gögnunum, enda er hér um mjög óeðlileg vinnubrögð að ræða. Það sást vel þegar við fengum loksins eftir marga mánuði afrit af samningi Samkeppniseftirlitsins og matvælaráðuneytisins um þessa athugun, þá blasti við að ráðuneytið stjórnar algerlega ferðinni í þessu máli,“ segir Guðmundur Kristjánsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »