„Algjörlega óeðlileg vinnubrögð“

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brim hf., telur vinnubrögð matvælaráðherra- og samkeppniseftirlitsins …
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brim hf., telur vinnubrögð matvælaráðherra- og samkeppniseftirlitsins óásættanleg. Ljósmynd/Aðsend mynd

„Þetta eru algjörlega óeðlileg vinnubrögð. Það getur ekki gengið upp að eitt framkvæmdarvald geti samið um peningagreiðslur til annars framkvæmdarvalds um að rannsaka fyrirtæki og borgara í landinu,“ segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf., í samtali við blaðamann mbl.is.

Sam­keppnis­eft­ir­litið (SKE) hef­ur ákveðið beita Brim hf. dag­sekt­um að upp­hæð 3.500.000 kr. á dag, af þeirri ástæðu að fyr­ir­tækið hafi ekki enn veitt upp­lýs­ing­ar og gögn sem óskað var eft­ir í tengsl­um við yf­ir­stand­andi at­hug­un SKE á stjórn­un­ar- og eigna­tengsl­um fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Verður Brim sektað þar til upplýsingabeiðni SKE frá 5. apríl á þessu ári verður svarað.

Brim ætli að kæra

Guðmundur telur samkeppniseftirlitið hafa beitt Brim ranglæti en tilkynningin um dagsektirnar barst Brim í dag. 

„Brim unir ekki þessari ákvörðun og mun kæra til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Auk þess mun félagið bera fram kvörtun við Umboðsmann Alþingis þar sem félagið telur sig beitt rangsleitni af hálfu Samkeppniseftirlitsins,“ segir Guðmundur.

Framkvæmdarvaldið geti ekki bara gert það sem því sýnist

Guðmundur telur að ýmis atriði í samningi SKE og matvælaráðuneytisins, um athugunina, skerði sjálfstæði eftirlitsins.

„Framkvæmdarvaldið getur ekki bara gert það sem því sýnist. Brim telur það ekki ásættanlegt að matvælaráðherra sem er í pólitískri stefnumótun geri samning við stjórnvald sem býr yfir mjög umfangsmiklum rannsóknar- og sektarheimildum um gerð skýrslu til að þjóna sínum pólitísku sjónarmiðum.

Brim fékk fyrr í dag afrit af samningi Samkeppniseftirlitsins og ráðherra þar sem fram kemur  að matvælaráðherra hefur heimild til að stöðva greiðslur til eftirlitsins, ef hann er ekki ánægður með skýrsluna. Af því leiðir að Samkeppniseftirlitið er því ekki sjálfstætt í þessu verkefni,“ segir Guðmundur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »