Samningur um starfsemi Breiðar undirritaður

Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims, Valldís …
Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims, Valldís Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri Breið Þróunarfélgs og Inga Jóna Friðgeirsdóttir, fjármálastjóri Brims. Ljósmynd/Brim

Brim hf. og Akraneskaupstaður hafa skrifað undir samning um framhald á starfsemi Breiðar þróunarfélags til næstu þriggja og hálfs árs eða til loka árs 2026.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Brims.

Þar segir að Akraneskaupstaður og Brim hafi sett sér sameiginleg markmið um að unnið verði á tímabilinu að því að efla starfsemi Breiðar sem vettvangs nýsköpunar og frumkvöðlastarfs. Áherslan verði m.a. lögð á rannsóknir og nýtingu auðlinda hafsins, aðgerðir gegn súrnun sjávar og aðgerðir í loftslagsmálum til að mæta markmiðum Íslands í loftslags- og umhverfismálum.

Jafnframt að sameiginlega verði unnið að breytingum á aðalskipulagi Breiðarinnar og nýju deiliskipulagi á grundvelli vinningstillögunnar „Lifandi samfélag við sjó“ sem unnin var af  arkitektastofunni Arkþing/Nordic og Eflu verkfræðistofu. Markmið hlutaðeigandi er að skipulagsvinnu verkefnisins ljúki á árinu 2025.

„Breið þróunarfélag var stofnað í júlí 2020 og eru aðilar sammála um að verulegur og jákvæður árangur hafi verið af samstarfinu frá stofnun þess. Þann árangur má m.a. sjá í uppbyggingu nýsköpunarseturs og nýjum störfum sem hafa skapast á Akranesi í ýmsum greinum en þó aðallega rannsóknum og þróun. Varðandi þróun Breiðarinnar liggja fyrir niðurstöður hugmyndasamkeppni og vinningstillaga sem aðilar eru sammála um að leggja til grundvallar framtíðaruppbyggingu á svæðinu,“ segir í tilkynningunni.

Framkvæmdastjóri félagsins er Valdís Fjölnisdóttir og í stjórn sitja: Gísli Gíslason, starfandi stjórnarformaður, Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, og Inga Jóna Friðgeirsdóttir, fjármálastjóri Brims.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »