Hvað felst í kjarasamningi sjómanna?

ÞAð var létt yfir fulltrúum samningsaðila þegar kjarasamningar voru undirritaðir. …
ÞAð var létt yfir fulltrúum samningsaðila þegar kjarasamningar voru undirritaðir. Brostu þeir Vilhjálmur Birgisson og Jens Garðar Helgason út að eyrum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kauptrygging hækkar í fyrsta sinn frá árinu 2019 og lífeyrisréttindi sjómanna verða jöfnuð við það sem viðgengst á almennum vinnumarkaði. Þá byggir kjarasamningur stéttarfélaga sjómanna og útgerða, sem undirritaður var í gærkvöldi, á fjórum stoðum sem eru bætt réttindi og kjör, meira öryggi, aukið gagnsæi og traust og umbætur á samningi.

Þetta kemur fram í sameiginlegri kynningu samningsaðila á innihaldi kjarasamningsins, sem gildir í tíu ár.

Kauptryggingar hækka

Kauptrygging (lágmarkslaun) sjómanna hækka um 127.247 krónur á mánuði samkvæmt nýjum kjarasamningi sem undirritaður var í gærkvöldi. Er þetta fyrsta hækkun kauptryggingar frá árinu 2019. Flestir sjómenn eru með laun umfram þetta en kauptryggingin er grundvöllur tekna í tilfelli til að mynda veikinda.

Með samningnum verður yfirvélstjórum, skipstjórum og yfirstýrimönnum tryggðar 617.417 krónur á mánuði. Kauptrygging matsveina, fyrsta og annars vélstjóra, vélavarðar og bátsmanns, 2. stýrimanns og netamanns veða 535.723 krónur. Háseti verður með 454.027 króna kauptryggingu.

Tímakaup og álagsgreiðslur miða við kauptryggingu og hækkar það því einnig.

Hlátur faðmlög og klapp einkenndi endalok margra ára samningsleysi.
Hlátur faðmlög og klapp einkenndi endalok margra ára samningsleysi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lífeyris- eða kaupauki

Mótframlag útgerðar í lífeyrissjóð hækkar um 3,5%, úr 8% í 11,5%. Þá fellur viðmið við heimsmarkaðsverð á olíu úr gildi og skiptaprósentan færð í 69,2%, en var 70%. Um er að ræða sérstakt baráttumál sjómanna sem hafa óskað eftir því að þeir njóti sömu lífeyrisréttinda og aðrir launþegar.

Þá er sjómönnum gefinn valkostinn að taka ekki við lífeyrisaukanum og velja þess í stað kaupauka þar sem mótframlag í lífeyrissjóð helst óbreytt og viðmið við heimsmarkaðsverð á olíu er fellt úr gildi, en skiptaprósentan hækkar þá í 70,5%.

Gagnsæi í launauppgjöri

Samningarnir gera ráð fyrir að í launauppgjöri verði tilgreint aflamagn og aflaverðmæti hverrar tegundar, tilgreining veiðiferðar, skipting í stærðarflokka og verð hvers flokks, skiptaprósenta, fjöldi í áhöfn og fjöldi lögskráningardaga.

Markmið þessara ákvæða er að auka gagnsæi og traust í launamálum sjómanna.

Jafnframt verður staðlaður fiskverðssamningur fyrir verð á uppsjávarfiski og gert upp á umsaminni prósentu milli útgerða og áhafna af áætluðu skilaverði afurða.

Kveðið er á um að sérstakir fundir fari fram milli útgerða, áhafna og stéttarfélaga við upphaf og lok vertíða. Þá er útgerðum gert að fara yfir söluhorfur afurða og væntanleg verð á vertíðinni við upphaf vertíðarinnar. Við lok vertíðarinnar á útgerð að skýra forsendur fyrir uppgjöri, sýna sölunótur afurða og tilkynna leiðréttingar, ef um þær er að ræða.

Lagt er upp með að fræðsla til trúnaðarmanna verði aukin og í ákveðnum tilvikum heimilt að kjósa tvo trúnaðarmenn.

Aukin veikindaréttur

Slysa- og veikindaréttur er lengdur í fjóra mánuði og er skipverjum tryggð staðgengilslaun í 60 daga á 120 daga tímabili.

Þá er gert ráð fyrir að komið veri á öryggisnefnd sem vinnur markvisst að málum er tengjast öryggi, heilsu og líðan á sjó með markmið um að fækka slysum á sjó og draga úr álagi.

Hafa mánuð til að samþykkja

Atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn lýkur 10. mars næstkomandi en hann nær til fjölda félaga, en kjarasamningurinn nær til:

  • Félag skipstjórnarmanna og fyrir hönd Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðanda og Vísis, félagi skipstjórnarmanna á Suðurnesjum
  • VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna
  • SSÍ, Sjómannasamband Íslands fyrir hönd Verkalýðsfélags Akraness, Verkalýðsfélags Snæfellinga, Verkalýðs og sjómannafélags Bolungarvíkur, Verkalýðsfélags Vestfirðinga (VerkVest), Stéttarfélagsins Samstöðu, Öldunnar – stéttarfélags á Sauðárkróki, Sjómannafélags Ólafsfjarðar, Sjómannafélags Eyjafjarðar, Framsýnar stéttarfélags, Verkalýðsfélags Þórshafnar, ASA vegna AFL-starfsgreinafélags, Sjómannafélagsins Jötuns í Vestmannaeyjum, Verkalýðsfélagsins Bárunnar, Eflingu stéttarfélags, Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis og Verkalýðs- og sjómannafélags Sandgerðis.
  • SVG – sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.5.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 294 kg
Grásleppa 197 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 501 kg
20.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 1.253 kg
Þorskur 158 kg
Samtals 1.411 kg
20.5.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 948 kg
Samtals 948 kg
20.5.24 Kvikur EA 20 Grásleppunet
Grásleppa 2.136 kg
Samtals 2.136 kg
20.5.24 Sæfugl ST 81 Grásleppunet
Grásleppa 112 kg
Þorskur 75 kg
Skarkoli 23 kg
Samtals 210 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.5.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 294 kg
Grásleppa 197 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 501 kg
20.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 1.253 kg
Þorskur 158 kg
Samtals 1.411 kg
20.5.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 948 kg
Samtals 948 kg
20.5.24 Kvikur EA 20 Grásleppunet
Grásleppa 2.136 kg
Samtals 2.136 kg
20.5.24 Sæfugl ST 81 Grásleppunet
Grásleppa 112 kg
Þorskur 75 kg
Skarkoli 23 kg
Samtals 210 kg

Skoða allar landanir »