Veiðigjöldin 4,8 milljarðar og Brim greiðir mest

Skuttogarinn Akurey er gerður út af Brimi, en það félag …
Skuttogarinn Akurey er gerður út af Brimi, en það félag greiðir mest í veiðigjöld 2020 samkvæmt álagningu Fiskistofu. mbl.is/Þorgeir

Sextán stærstu gjaldendur veiðigjalds greiddu samanlagt um 3 milljarða króna í ríkissjóð, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Fiskistofu. Þar er greint frá því að álagt veiðigjald vegna ársins 2020 var 4,8 milljarðar króna.

Heildarupphæð álagðra veiðigjalda lækkar nokkuð milli ára, en álagning er nú tengd afkomu. Þannig námu álögð veiðigjöld 6,6 milljörðum 2019 og 11,3 milljörðum 2018.

Gjaldendur í fyrra voru 934 talsins og voru flestir þeirra að greiða vegna veiða yfir sumarið en þá fóru strandveiðar fram og voru um sjö til átta hundruð sem greiddu í kjölfar slíkra veiða. Hópurinn var minnstur í janúar 2020 þegar gjaldendur voru um 150.

Þorskur skilar 58,7%

Það er Brim sem greiðir mestu veiðigjöldin eða 367 milljónir króna og Samherji greiðir næstmest eða 281 milljón. Á eftir kemur Þorbjörn með 250 milljónir króna, svo FISK Seafood með 231 milljón og svo Skinney-Þinganes með 197 milljónir króna.

Ef litið er til álagningar eftir póstnúmerum gjaldenda sést að Reykjavík (101), Vestmannaeyjar, Grindavík, Akureyri og Sauðárkrókur greiða mesta veiðigjaldið og greiða samanlagt 2,4 milljarða eða helming veiðigjaldsins. Þar af greiða gjaldendur í Reykjavík (101) 680 milljónir, í Vestmannaeyjum 550 milljónir, í Grindavík 530 miljónir, á Akureyri 400 milljónir og á Sauðárkróki 240 milljónir.

Þorskurinn skilar ríkissjóði 58,7% af veiðigjaldi ársins 2020 eða 2,8 milljörðum króna, næstmestu skilar ýsa eða 780 milljónum króna. Grálúða skilar 400 milljónum, makríll 260 miljónum og síld 210 milljónum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.5.24 431,41 kr/kg
Þorskur, slægður 13.5.24 523,97 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.5.24 296,03 kr/kg
Ýsa, slægð 13.5.24 266,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.5.24 190,76 kr/kg
Ufsi, slægður 13.5.24 173,62 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 13.5.24 216,37 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.5.24 Nonni SU 36 Handfæri
Þorskur 808 kg
Samtals 808 kg
14.5.24 Jökla ST 200 Handfæri
Þorskur 772 kg
Samtals 772 kg
14.5.24 Hjörtur Stapi ÍS 124 Handfæri
Þorskur 861 kg
Samtals 861 kg
14.5.24 Loftur HU 717 Handfæri
Þorskur 758 kg
Karfi 14 kg
Ufsi 13 kg
Samtals 785 kg
14.5.24 Tóti NS 36 Handfæri
Ýsa 81 kg
Samtals 81 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.5.24 431,41 kr/kg
Þorskur, slægður 13.5.24 523,97 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.5.24 296,03 kr/kg
Ýsa, slægð 13.5.24 266,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.5.24 190,76 kr/kg
Ufsi, slægður 13.5.24 173,62 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 13.5.24 216,37 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.5.24 Nonni SU 36 Handfæri
Þorskur 808 kg
Samtals 808 kg
14.5.24 Jökla ST 200 Handfæri
Þorskur 772 kg
Samtals 772 kg
14.5.24 Hjörtur Stapi ÍS 124 Handfæri
Þorskur 861 kg
Samtals 861 kg
14.5.24 Loftur HU 717 Handfæri
Þorskur 758 kg
Karfi 14 kg
Ufsi 13 kg
Samtals 785 kg
14.5.24 Tóti NS 36 Handfæri
Ýsa 81 kg
Samtals 81 kg

Skoða allar landanir »