Borðtölvuútgáfa Starborne Frontiers komin í loftið

Mynd úr tölvuleiknum Solid Clouds.
Mynd úr tölvuleiknum Solid Clouds. Mynd/Solid Clouds

Tölvuleikjaframleiðandinn Solid Clouds hefur gefið út borðtölvuútgáfu af leiknum Starborne Frontiers sem nýlega var gefinn út á snjalltæki. 

Starborne Frontiers bindur vonir við að borðtölvuútgáfa leiksins muni auka sýnileika og markaðshæfi Starborne Frontiers það sem tölvuleikjaframleiðandinn mun nú geta markaðssett leikinn bæði fyrir borðtölvur og snjalltæki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Starborne Frontiers.

Markaðssetning gengur vel 

Borðtölvuútgáfa leiksins mun jafnframt gera Solid Clouds kleift að setja leikinn á Steam sem er langstærstu leikjaefnisveita heims, en hundruðir tölvuleikjaspilara nota veituna til að ná sér í leiki, að því er fram kemur í tilkynningunni. 

Borðtölvuútgáfa leiksins mun einnig styðja við vöxt samfélags spilara Starborne Frontiers sem halda til á Discord spjallforritinu. Félagsleg virkni spilara Starborne Frontiers á Discord-rás leiksins stuðlar til að mynda að því að spilarar loða betur við leikinn.

Í kjölfar útgáfu Starborne Frontiers fyrir snjalltæki um síðustu mánaðamót hóf Solid Clouds að auglýsa leikinn í meira mæli á snjallbúðum Apple og Android. Sú markaðssetning hefur gengið vel og koma nýir notendur í snjalltækjaleikjum að langmestu leyti í gegnum beinar auglýsingar. Auk þess segir í tilkynningunni að vel hafi gengið að fá nýja spilara til að kaupa hluti í leiknum.

Mynd úr umræddum tölvuleik.
Mynd úr umræddum tölvuleik. Mynd/Solid Clouds

Vinna áfram að því að besta leikinn 

Sá mælikvarði sem Solid Clouds horfir mest á varðandi velgengni Starborne Frontiers er í hversu miklum mæli og hversu hratt auglýsingakostnaður skilar sér í tekjum. Félagið hefur náð einu meginmarkmiði sínu sem er að fá 30% af auglýsingakostnaði til baka í formi tekna á einni viku, segir í tilkynningunni. 

„Teymið er stolt að hafa náð þessu markmiði en mikil vinna var lögð í að ná athygli spilara í byrjun leiksins. Við sjáum til dæmis að helmingur þeirra sem kaupir hluti í leiknum gerir það á fyrstu 20 mínútunum. Við gerum ráð fyrir að miðað við núverandi þróunarstöðu leiksins muni auglýsingakostnaður skila sér til baka í tekjum á innan við ári. Teymið vinnur nú áfram að því að besta leik- og tekjukerfi leiksins svo að markmið okkar um að auglýsingakostnaður skili sér um tvöfalt til baka í tekjum á einu ári náist,“ er haft eftir Stefáni Gunnarssyni, forstjóri Solid Clouds, í tilkynningunni. 

Þá segir jafnframt að áhugasamir spilarar geti sótt um aðgang að PC útgáfunni á Discord rás Solid Clouds.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK