QuizUp hluti af kvölddagskrá NBC

Þorsteinn Baldur Friðriksson, stofnandi og framkvæmdastjóri Plain Vanilla.
Þorsteinn Baldur Friðriksson, stofnandi og framkvæmdastjóri Plain Vanilla.

Ein stærsta sjónvarpsstöð Bandaríkjanna, NBC, hefur ákveðið að framleiða 10 þátta sjónvarpsseríu sem byggir á íslenska spurningaleiknum QuizUp. Þátttakendur í upptökuveri NBC munu etja kappi við sjónvarpsáhorfendur sem sitja heima hjá sér, hvar sem er í Bandaríkjunum, og spila leikinn í snjalltækjum sínum. Sigurvegarar í þættinum munu hljóta allt að eina milljón dala sem jafngildir u.þ.b. 130 milljónum króna. 

Fram kemur í tilkynningu, að NBC framleiði þættina í samstarfi við íslenska tölvuleikjafyrirtækið Plain Vanilla, sem þróaði QuizUp, en þættirnir munu einfaldlega heita QuizUp.

„QuizUp er í dag vinsælasti stafræni spurningaleikur í heimi með rúmlega 75 milljónir notenda. Leikurinn hefur komist í fyrsta sæti App Store í 128 löndum. NBC hefur framleitt fjölmarga vinsæla þætti á borð við Frasier, Friends, Seinfeld, The West Wing, Fear Factor, The Office, America's Got Talent, The Biggest Loser, Saturday Night Live, Tonight Show með Jimmy Fallon og The Voice,“ segir í tilkynningu. 

Búist við að aðrar stöðvar framleiði sínar útgáfur af þættinum

Þá segir, að þættirnir gangi þannig fyrir sig að ef þátttakandi í upptökuveri NBC vinnur átta spurningalotur gegn átta ólíkum keppendum, sem geta verið staddir hvar sem er innan Bandaríkjanna, þá geti þeir unnið allt að eina milljón dala. Ef einhverjir af andstæðingunumí heima í stofu vinna sínar lotur, þá hljóti þeir upphæðina sem í boði var fyrir þá lotu. Þeir sem vilja etja kappi við þátttakanda vikunnar í upptökuverinu og eiga möguleika á að hljóta verðlaunaféð munu geta komist í pott með því að keppa í ákveðnum spurningaflokkum í QuizUp appinu vikuna fyrir hvern þátt. Það geti því allir sem eru með QuizUp appið komist í pottinn.

Þá er búist við að sjónvarpsstöðvar víða um heim muni framleiða sínar eigin útgáfur af QuizUp-spurningaþættinum.

„Frábært næsta skref“

„QuizUp hefur náð að virkja ástríðu fólks um allan heim fyrir spurningaleikjum með langbesta appinu af þessu tagi. Sjónvarpsþáttur er einfaldlega eðlileg framlenging á leiknum. Við erum að búa til viðbót við þetta stafræna viðskiptamódel, sjónvarpskonsept sem höfðar til allra og er frábær afþreying á hvaða tungumáli sem er. Þessi þáttaröð mun breyta vinsælasta spurningaappi í heiminum í skemmtilegan sjónvarpsviðburð þar sem allir geta tekið þátt og hver sem er getur unnið. Sjónvarp verður ekki mikið gagnvirkara en þetta,“ segir Paul Telegdy, framkvæmdastjóri kvölddagskrár NBC sjónvarpsstöðvarinnar, í tilkynningu.

„QuizUp sjónvarpsþátturinn er frábært næsta skref hjá okkur og við gætum ekki beðið um betri samstarfsaðila en NBC. Síðastliðna fimm mánuði höfum við algerlega breytt QuizUp með því að færa leikinn nær því að vera líka samfélagsmiðill. Með tilkomu My QuizUp viðbótarinnar, sem fór í loftið í síðustu viku, þá geta notendur nú búið til sitt eigið efni og spurningar. QuizUp sjónvarpsþátturinn mun gera okkur kleift að færa nálgun Plain Vanilla á þetta sammannlega áhugamál fólks, að keppa í að svara spurningum rétt, beint inn í stofu til milljóna sjónvarpsáhorfenda. Við erum afskaplega spennt fyrir því,“ segir Þorsteinn B. Friðriksson, forstjóri og stofnandi QuizUp, í tilkynningu.

Þá segir að höfundar að QuizUp sjónvarpsþættinum séu þeir Jeff Apploff og Wes Kauple en sá fyrrnefndi mun stýra gerð þáttanna. Framleiðsla þáttanna er í höndum Universal Television og Apploff Entertainment. Verkefninu er stýrt fyrir hönd QuizUp af Viggó Erni Jónssyni og Þorsteinn B. Friðrikssyni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK