Landsliðskonur með fyrirtæki saman – gengið ótrúlega vel

Perla Ruth Albertsdóttir og Sandra Erlingsdóttir reka Ps. Árangur saman.
Perla Ruth Albertsdóttir og Sandra Erlingsdóttir reka Ps. Árangur saman. Ljósmynd/Ps. Árangur

Sandra Erlingsdóttir, landsliðskona í handbolta, er ekki aðeins atvinnukona í íþróttinni heldur rekur hún einnig fyrirtækið Ps. Árangur með Perlu Ruth Albertsdóttur, liðsfélaga sínum í landsliðinu.  

„Pabbi fékk þessa hugmynd og Perla var sú eina sem ég hugsaði um. Ég tók upp tólið, hringdi í hana og hún var geðveikt til í þetta.

Við vorum menntaðar fyrir en vildum mennta okkur aðeins betur. Við skipulögðum okkur vel og unnum vel í þessu í um það bil eitt ár áður en við opnuðum.

Perla Ruth Albertsdóttir og Sandra Erlingsdóttir eru liðs- og vinnufélagar.
Perla Ruth Albertsdóttir og Sandra Erlingsdóttir eru liðs- og vinnufélagar. Eggert Jóhannesson

Síðan þá hefur gengið ótrúlega vel og okkar samvinna gengur sjúklega vel. Við elskum að vera saman í landsliðsverkefnum og fá vinnutíma saman,“ sagði Sandra um fyrirtækisreksturinn.

Ps. Árangur sérhæfir sig í næringarþjálfun fyrir fólk á öllum aldri. „Þetta er næringarráðgjöf sem er í rauninni fyrir alla. Við erum með alls konar hópa af fólki og tökum við öllum,“ sagði Sandra.

Nánari upplýsingar um Ps. Árangur má nálgast á Instagram-síðu þess og heimasíðu.

View this post on Instagram

A post shared by Ps. Árangur (@ps.arangur)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert