Var ógeðslega leiðinleg að skemma það

Elín Jóna Þorsteinsdóttir átti flotta innkomu í kvöld.
Elín Jóna Þorsteinsdóttir átti flotta innkomu í kvöld. Ljósmynd/IHF

Markvörðurinn Elín Jóna Þorsteinsdóttir átti mjög góða innkomu í mark Íslands er liðið vann 30:28-sigur á Kongó og tryggði sér Forsetabikarinn á HM í Frederikshavn í Danmörku í kvöld.

Varði Elín m.a. víti frá Fanta Digouraga, sem hafði verið ein besta vítaskyttan á HM þar til hún mætti Elínu.

„Ég veit ekki hvort þú varst búinn að sjá það á Instagram, en hún var búin að skora úr 17 af 17 vítum fyrir þennan leik. Ég var ógeðslega leiðinleg að skemma það hjá henni,“ sagði Elín lauflétt við mbl.is eftir leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert