Ótrúlegur viðsnúningur Kiel

Mykola Bilyk var drjúgur í mögnuðum sigri Kiel
Mykola Bilyk var drjúgur í mögnuðum sigri Kiel AFP/Ina Fassbender


Kiel sigraði Montpellier með 10 marka mun, 31:21, í 8-liða úrslitum Meistaradeildar karla í handbolta í dag en leikurinn fór fram í Kiel.

Montpellier vann fyrri leikinn með níu mörkum, 39:30, og því fáir sem bjuggust við að þýska liðið ætti möguleika.

Svínn Eric Johansson skoraði 8 mörk og Austurríkismaðurinn Mykola Bilyk bætti við 7 fyrir Kiel. Lucas Pellas var markahæstur í liði Montpellier með 6 mörk.

Kiel fylgir Magdeburg og Aalborg í úrslitahelgina í Köln en Barcelona og PSG mætast í síðasta leik undanúrslitanna í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert