Átta íslensk mörk í sigri Gummersbach

Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach í Þýskalandi
Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach í Þýskalandi Ljósmynd/Gummersbach

Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach sigruðu Wetzlar 35:28 í þýsku deildinni í handbolta í dag. Gummersbach er í 6. sæti deildarinnar.

Arnór Snær Óskarsson og Elliði Snær Viðarsson skoruðu fjögur mörk hvor fyrir heimamenn í Gummersbach en liðið leiddi með átta mörkum í hálfleik, 18:10. Arnór Snær gekk til liðs við félagið í febrúar á láni frá Rhein-Neckar Löwen

Gummersbach er ósigrað í síðustu sex leikjum en þar af hefur liðið sigrað fimm leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka