Kona ráðin þjálfari karlaliðs í Þýskalandi

Sabrina Wittmann er tekinn við karlaliði Ingolstadt
Sabrina Wittmann er tekinn við karlaliði Ingolstadt Mynd/Ingolstadt

Sabrina Wittmann hefur verið ráðin þjálfari þýska liðsins Ingolstadt. Hin 32 ára Wittmann er fyrsta konan sem þjálfar atvinnumannalið karla í Þýskalandi.

Wittmann lætur af störfum sem þjálfari U19 ára liðs félagsins til að taka við aðalliðinu en Ingolstadt spilar í þriðju efstu deild.

„Ég vildi allra mest fá fyrsta tækifæri mitt hjá Ingolstadt. Félagið skiptir mig miklu máli og er lið heimabæjar míns“.

Segir Wittmann við heimasíðu Ingolstadt.

Wittmann fylgir í fótspor þriggja kvenna, þeirra Carolina Morace (Viterbese, Sería C, ítölsk) og Corinne Diacre (Clermont, 2. deild, frönsk) og hinnar portúgölsku Helena Costa sem einnig þjálfaði Clermont.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert