Barcelona í úrslit Meistaradeildarinnar

Fridolina Rolfo skaut Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar
Fridolina Rolfo skaut Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar AFP/Adrian DENNIS

Barcelona sneri taflinu við gegn Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildar kvenna í fótbolta í dag. Chelsea vann fyrri leikinn á Spáni 1:0 en Barcelona fer áfram eftir 2:0 sigur á Stamford Bridge í dag.

Aitana Bonmati kom gestunum yfir um miðjan fyrri hálfleik og gamanið kárnaði enn frekar hjá Chelsea þegar Kadeisha Buchanan fékk tvö gul spjöld á fimm mínútuna kafla. Fridolina Rolfo kom Barcelona í 2:0 úr vítaspyrnu á 74. mínútu og þar með yfir samanlagt 2:1. 

Þar við sat og Barcelona fór áfram. PSG og Lyon mætast í hinum undanúrslitaleiknum á morgun en Lyon leiðir 3:2 eftir fyrri leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert