Klaufalega rauða spjaldið dýrkeypt (myndskeið)

Burnley vann kærkominn sigur á Brentford, 2:1, í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Turf Moor í dag. 

Snemma leiks var Sergio Regulion rekinn af velli eftir að hafa ýtt í bakið á Vitinho. Burnley fékk víti sem Jacob Larsen skoraði úr í leiðinni. 

David Datro Fofana bætti við öðru marki Burnley en Kristoffer Ajer minnkaði muninn undir lok leiks. 

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert