Sara Björk bikarmeistari eftir vítakeppni

Wolfsburg er þýskur bikarmeistari.
Wolfsburg er þýskur bikarmeistari.

Sara Bjök Gunnarsdóttir er þýskur bikarmeistari í annað skipti eftir 3:2-sigur Wolfsburg á Bayern München í vítakeppni í Köln í dag að viðstöddum 17.692 áhofendum.

Staðan eftir venjulegan leiktíma var markalaus og því þurfti að framlengja. Ekki tókst að skilja liðin að í framlengingunni og fór leikurinn því alla leið í vítaspyrnukeppni. Sara Björk lék allan leikinn en tók ekki víti fyrir sitt lið. 

Wolfsburg mætir Lyon í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á fimmtudaginn kemur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert