Unnu riðilinn og fara beint í undanúrslit

Vitality hampaði sigri fyrir framan sína eigin aðdáendur í maí.
Vitality hampaði sigri fyrir framan sína eigin aðdáendur í maí. Skjáskot/Blast

Það hefur lítið sem ekkert klikkað hjá rafíþróttaliðinu Vitality en liðið er komið í undanúrslit stórmótsins BLAST Premier World Final í Counter-Strike.

Vitality endaði efst í A-riðli og töpuðu ekki einum leik í riðlakeppninni. Liðið fer beint í undanúrslit en í riðlakeppninni mætti Vitality bæði Natus Vincere og Cloud9, sem voru talin sigurstrangleg fyrir mót.

Í undanúrslitunum mætast annaðhvort Vitality og Natus Vincere á ný eða Vitality og G2. Undanúrslitin hefjast á laugardag en Vitality leikur klukkan 15.00. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert