Brasilíumaðurinn Thiago Silva mun yfirgefa herbúðir enska knattspyrnufélagsins Chelsea næsta sumar.
Frá þessu greina miðlar á Englandi en Thiago Silva hefur verið hjá Chelsea undanfarin fjögur ár.
Á hann að baki 149 leiki fyrir félagið og var lykilmaður er það vann Meistaradeildina árið 2021.
Silva, sem verður fertugur á árinu, er með tilboð frá liðum í heimalandinu en hann hefur áður leikið með París SG og AC Milan. Þá á hann að baki 113 leiki með brasilíska landsliðinu.