Tókst að verja skot Salah (myndskeið)

Bart Verbruggen, markvörður Brighton, átti eina af vörslum umferðarinnar er hann varði skot Liverpool-mannsins Mohameds Salahs í leik liðanna á Anfield í þrítugustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta um helgina. 

Skot Salah var lúmskt en Verbruggen var vandanum vaxinn og stökk í hornið. 

Vörslu Verbruggen og aðrar frábærar vörslur má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert