Orðaður við Liverpool og hafnaði nýjum samningi

Roberto De Zerbi gæti tekið við Liverpool.
Roberto De Zerbi gæti tekið við Liverpool. AFP/Glyn Kirk

Ítalski knattspyrnustjórinn Roberto De Zerbi hefur hafnað nýju samningstilboði frá Brighton, en hann hefur verið orðaður við Liverpool undanfarnar vikur.

Jürgen Klopp hættir með Liverpool eftir leiktíðina og var Xabi Alonso fyrst nefndur sem mögulegur eftirmaður Þjóðverjans. Alonso verður hins vegar áfram hjá Leverkusen í Þýskalandi á næstu leiktíð og gæti De Zerbi því verið næstur á blaði hjá forráðamönnum Liverpool-félagsins.

„Við sjáum til hvað gerist í framtíðinni. Ég vil tala við eigandann og sjá hvað gerist. Ég verð ekki lengur hjá félagi ef það er ekki sami metnaður og hjá mér sjálfum. Við komumst ekki að  samkomulagi um samning að þessu sinni,“ sagði Ítalinn um framtíð sína á blaðamannafundi í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert