Ekki eftirsótt tölfræði Manchester United

Casemiro vonsvikinn í gær.
Casemiro vonsvikinn í gær. AFP/Justin Tallis

Manchester United gerði jafntefli við Brentford, 1:1, í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í gær. 

Brentford var með mikla yfirburði í leiknum en Manchester United varð aðeins annað lið deildarinnar til að fá meira en 30 skot á sig í sama leiknum á Englandi. 

Hitt liðið er botnlið Sheffield United en Manchester-liðið er í sjötta sæti, átta stigum á eftir Tottenham í fimmta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert