Skallaði aftur fyrir sig (myndskeið)

Chris Wood tryggði Nottingham Forest eitt stig er liðið gerði 1:1-jafntefli á heimavelli gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Jafnaði Wood með skemmtilegum skalla aftur fyrir sig á 61. mínútu. Jafnteflið dugði Forest til að fara upp úr fallsæti. Jean-Philippe Mateta skoraði mark Palace á 11. mínútu.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert