Ótrúlegt sjálfsmark réði úrslitum (myndskeið)

Séamus Coleman, fyrirliði Everton, varð fyrir því óláni að skora sigurmark Bournemouth er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Skoraði Coleman ótrúlegt sjálfsmark í uppbótartíma. Dominic Solanke hafði komið Bournemouth yfir á 64. mínútu og Beto jafnað fyrir Everton á 87. mínútu.

Sjálfsmarkið ótrúlega og önnur tilþrif úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert