Aftur tvö mörk í uppbótartíma (myndskeið)

Annan leikinn í röð voru skoruð tvö mörk í uppbótartíma er Brentford og Manchester United mættust í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld, en lokatölur urðu 1:1.

Mason Mount virtist vera að skora sigurmark United á sjöttu mínútu uppbótartíman en Kristoffer Ajer jafnaði á níundu mínútu uppbótartímans og þar við sat.

United vann heimaleikinn sinn gegn Brentford, 2:1, þar sem Scott McTominay skoraði einmitt tvö mörk í uppbótartíma.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert