Dæmdi leik Íslands og nú stórleikinn á Englandi

Anthony Taylor dæmir stórleikinn næstu helgi.
Anthony Taylor dæmir stórleikinn næstu helgi. AFP/Adrian Dennis

Anthony Taylor verður dómari í stórleik Manchester City og Arsenal í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Ethiad-leikvanginum á sunnudaginn kemur. 

Arsenal er í fyrsta sæti deildarinnar með 64 stig, jafnmörg og Liverpool en með betri markatölu. City er í þriðja sæti með stigi minna. 

Anthony Taylor er með betri dómurum Englands og fær stóra hlutverkið næstu helgi. 

Taylor dæmdi leik Ísraels og Íslands síðastliðinn fimmtudag þar sem Ísland vann, 4:1. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert