Áfall fyrir Tottenham

Micky van de Ven verður ekki með Tottenham gegn Fulham.
Micky van de Ven verður ekki með Tottenham gegn Fulham. AFP/Ben Stansall

Hollenski varnarmaðurinn Micky van de Ven mun ekki leika með Tottenham gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á laugardag vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik Tottenham gegn Aston Villa síðastliðinn laugardag.

Óvíst er hve lengi sá hollenski verður frá en hann verður í það minnsta ekki klár í slaginn um helgina. 

Miðvörðurinn hefur mikið misst út vegna meiðsla á leiktíðinni. Lék hann t.a.m. ekkert frá nóvember til janúar vegna meiðsla aftan í læri, en hann var einnig að glíma við sömu meiðsli er hann lék með Wolfsburg í Þýskalandi.

Hinn 22 ára gamli van de Ven hefur leikið 17 leiki með Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni og skorað í þeim eitt mark, en hann kom til enska félagsins síðasta sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert