Mark Darwin Núnez á topplistanum (myndskeið)

Darwin Núnez tryggði Liverpool afar dýrmætan sigur, 1:0, gegn Nottingham Forest í 27. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í Skírisskógi á laugardaginn var.

Mark Núnez kom á 99. mínútu og var svokallað flautumark en eftir sigurmarkið var leikurinn flautaður af og Liverpool fagnaði sigri.

Þau hafa verið nokkur flautumörkin frá stofnun ensku úrvalsdeildarinnar en þau helstu má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert