Arsenal hélt titilbaráttunni á lífi

Leikmenn Arsenal að fagna marki Alessiu Russo í dag.
Leikmenn Arsenal að fagna marki Alessiu Russo í dag. Ljósmynd/@ArsenalWFC

Alessia Russo skoraði sigurmark Arsenal gegn Tottenham í nágrannaslag liðanna í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í dag.

Arsenal er nú með 34 stig í 3. sæti, þremur stigum á eftir Manchester City í fyrsta sæti. Í öðru sæti er Chelsea með 34 stig en liðið á leik til góða.

Russo skoraði á 49. mínútu eftir stoðsendingu frá Beth Mead.

Uppselt var á leikinn sem fór fram á Emirates vellinum en 60.050 manns mættu á völlinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert