Brentford og Chelsea sýndur beint á mbl.is

Chelsea hefur aðeins tapað einum af síðustu fimm leikjum í …
Chelsea hefur aðeins tapað einum af síðustu fimm leikjum í öllum mótum. AFP/Adrian Dennis

Leikur Brentford og Chelsea í 27. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, sem fram fer á Community-leikvanginum í Vestur-London, verður sýndur beint hér á mbl.is í dag en hann hefst klukkan 15.

Útsendingin hefst klukkan 14.30 með upphitun á Símanum Sport og er leikurinn sýndur á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 15.

Chelsea er í 11. sæti deildarinnar með 35 stig en Brentford er í sextánda sætinu með 25 stig.

Smelltu hér til þess að horfa á leik Brentford og Chelsea í beinni útsendingu á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert