Úlfarnir nálgast Evrópusæti

Wolves vann 1:0 sigur á Sheffield í ensku úrvalsdeildinni í …
Wolves vann 1:0 sigur á Sheffield í ensku úrvalsdeildinni í dag. AFP

Enska knattspyrnufélagið Wolves hafði betur gegn Sheffield United í dag í 26. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Lokatölur í dag 1:0 en Wolves fer með sigrinum upp í áttunda sæti deildarinnar með 38 stig, sex stigum á eftir Manchester United sem er í sjötta sæti deildarinnar. Sheffield United er því áfram í síðasta sæti deildarinnar með 13 stig eftir 26 leiki.

Pablo Sarabia skoraði eina mark leiksins á 30. mínútu með góðu skallamarki eftir fyrirgjöf frá Rayan Ait Nouri.

Úlfarnir fagna góðu gengi í febrúar en liðið vann Chelsea og Tottenham í mánuðinum. Næsti leikur Úlfanna er gegn Newcastle en Newcastle-menn sitja í níunda sæti deildarinnar, einu stigi á eftir Wolves.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert