Eiginkona leikmannsins vill fá nýjan stjóra

Mauricio Pochettino og Thiago Silva fallast í faðma eftir leik …
Mauricio Pochettino og Thiago Silva fallast í faðma eftir leik hjá Chelsea. AFP/Glyn Kirk

Belle Silva, eiginkona varnarmannsins Thiago Silva, krefst breytinga hjá Chelsea eftir að liðið fékk skell á heimavelli gegn Wolves, 4:2, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á sunnudaginn.

Eftir leikinn, þar sem Thiago Silva minnkaði muninn með öðru marki Chelsea undir lokin á Stamford Bridge, fór Belle beint á samfélagsmiðilinn X og skrifaði: „Það er kominn tími á breytingar. Ef beðið verður með það, verður það of seint.“

Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Chelsea, þykir orðinn mjög valtur í sessi, enda þótt bent hafi verið á að félagið hafi ekki efni á að segja honum upp störfum að svo stöddu. 

Í framhaldi af skrifum eiginkonunnar hafa þeir Pochettino og Thiago Silva nú rætt málin. 

„Hann kom til mín og vildi ræða við mig. Það var einkasamtal en okkar samband er mjög gott. Ég myndi segja að það væri frábært," sagði Pochettino, samkvæmt Ben Jacobs, blaðamanni CBS.

Pochettino baðst sjálfur afsökunar á frammistöðu Chelsea eftir leikinn og hefur beðið stuðningsfólk félagsins um að sýna þolinmæði því það taki tíma að byggja upp nýtt lið. Chelsea er nú í ellefta sæti úrvalsdeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert